Follow Morðin á Illugastöðum across the charts and keep up with new listener reviews. Get the updates in your inbox.
Track this podcast · 7 days freeCard required. Cancel anytime. Choose your plan at signup.
Sagan af Natani og Agnesi, Friðriki og Sigríði. Aðfararnótt 14. mars árið 1828 voru Natan Ketilsson og maður sem kallaður var Fjárdráps-Pétur, myrtir á hroðalegan hátt á Illugastöðum á Vatnsnesi. Frásagnir og vangaveltur um morðin hafa lifað með þjóðinni í nærri tvö hundruð ár og enn er fjallað um þau. Agnes Magnúsdóttir, Friðrik Sigurðsson og Sigríður Guðmundsdóttir voru dæmd til dauða fyrir morðin. Tvö þeirra voru hálshoggin á Þrístöpum tæpum tveimur árum síðar og það voru síðustu aftökurnar á Íslandi. Af hverju ákváðu Agnes, Friðrik og Sigríður að drepa Natan og Pétur? Í þáttunum er leitað skýringa á því, reynt að lesa í persónurnar sem koma við sögu og athugað hvort hægt sé að leita skýringa í réttarfari, tíðaranda og aðstæðum fólks á þessum tíma. Umsjón: Þorgeir Ólafsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
RÚV Hlaðvörp
Sign up to track rankings and reviews from Spotify, Apple Podcasts and more.