RÚV Hlaðvörp

Skáld og skrælingjar

Categories

History, Arts, Books

Number of episodes

10

Published on

2025-03-08 10:30:00

Language

Icelandic

Skáld og skrælingjar

What’s This Podcast
About?

10 þátta röð fyrir Rás 1 í umsjón Þorgerðar E. Sigurðardóttur og Halldórs Guðmundssonar. Ísland og Kaupmannahöfn í spegli bókmenntanna: Í þáttunum verða þessi aldalöngu tengsl skoðuð frá mörgum sjónarhornum. Kaupmannahöfn var í næstum 500 ár eins konar höfuðborg Íslands, aðsetur stjórnsýslunnar, æðsta dómstólsins og konungsins. Sumir Íslendingar hröktust þangað eða voru fluttir til borgarinnar nauðugir, aðrir leituðu þar frelsis og réttinda sem þeir nutu ekki heima. Hvernig kom borgin þeim fyrir sjónir, hvernig breytti hún viðhorfum þeirra eða umturnaði lífshlaupinu? Óvíða sést þetta betur en í bókum Íslendinganna sjálfra og hér verður leitað fanga í þeim og rætt við rithöfunda og ýmsa sérfræðinga, auk þess sem heyra má áhugaverð brot úr safni RÚV í bland við ýmiss konar tónlist. Til verður mynd sem er stundum fögur, stundum óhugnanleg en alltaf forvitnileg. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Podcast Urls

Podcast Copyright

RÚV Hlaðvörp

Start monitoring your podcast.

Sign up to track rankings and reviews from Spotify, Apple Podcasts and more.