RÚV Hlaðvörp

Takk fyrir lánið

Takk fyrir lánið
4
Episodes
Arts, Music, Music History
Categories
Icelandic
Language
2026-03-18 12:05:00
Published

What's This Podcast
About?

Að „sampla“ í tónlist merkir að fá að láni hljóðbrot úr eldra lagi. Þessi aðferð hefur tíðkast í rúm fjörutíu ár, sérstaklega í hipphoppi, þar sem bassalínur og hljómar úr eldri diskólögum og fönki voru lengi grunnurinn að tónlistinni sem var rappað við, en er útbreidd í nær allri popptónlist samtímans. Í þessari þáttaröð segir Atli Bollason sögu þessarar aðferðar - tónklippilistarinnar - frá árdögum hennar í módernískri tónlist fimmta áratugarins, gegnum hipphopp níunda áratugarins Velt er upp lögfræðilegum álitamálum, en tónklippilistin hefur reynt mjög á höfundarréttarlög. Tónklippilistin er einnig sett í samhengi við póstmódernískar kenningar um textatengsl og spurt hvort endurvinnsla af þessu tagi sé leikur að innantómum vísunum sem endurspegli óhæfi til að fást við eigin samtíma, eða hvort hún komi á hugmyndafræðilegum tengslum við verkin sem á undan fóru í því skyni að varpa nýju, fersku og merkingarbæru ljósi á nútíðina. Hvernig kallast tónklippilistin á við sambærilegar aðferðir í myndlist og bókmenntum? Hver er munurinn á því að nota þekkt hljóðbrot og óþekkt? Hver er framtíð tónklippilistar þegar hægt er að framleiða „ímynduð hljóðbrot“ í einni svipan með aðstoð gervigreindar? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Podcast Urls

Podcast Copyright

RÚV Hlaðvörp

Start monitoring your podcast.

Sign up to track rankings and reviews from Spotify, Apple Podcasts and more.

Takk fyrir lánið
RÚV Hlaðvörp
RÚV Hlaðvörp