Gigtarspjallið er sex þátta fræðslusería frá SPOR fyrir fólk sem hefur nýlega greinst með bólgugigt og aðstandendur þess. Í þáttunum er farið á aðgengilegan hátt yfir það sem gott er að vita við upphaf greiningar – allt frá einkennum og rannsóknum til meðferðar, hreyfingar og daglegs lífs með bólgugigt. Læknirinn Berglind Bergmann ræðir við sérfræðinga úr ólíkum heilbrigðisstéttum, Gerði Gröndal gigtarlækni, Katrínu Þórarinsdóttur yfirlækni göngudeildar gigtarlækninga og Elínborgu Stefánsdóttur hjúkrunarfræðing á göngudeild gigtarlækninga, sem miðla þekkingu sinni og svara algengum spurningum sem vakna eftir greiningu. Gigtarspjallið – fyrir fyrstu skrefin með bólgugigt. Þættirnir eru gefnir út af SPOR og eru aðgengilegir bæði í hljóði og mynd.
Copyright 2026 All rights reserved.
Sign up to track rankings and reviews from Spotify, Apple Podcasts and more.