Follow Konungssinnar í Kísildal across the charts and keep up with new listener reviews. Get the updates in your inbox.
Track this podcast · 7 days freeCard required. Cancel anytime. Choose your plan at signup.
Konungurinn lengi lifi, skrifaði Donald Trump um sjálfan sig á samfélagsmiðlum í febrúar. Frá því að hann tók við embætti forseta hefur hann unnið að því að gjörbylta bandarísku stjórnkerfi og samfélagi með suðurafríska tæknimógúlinn Elon Musk sér við hlið. Hugmyndirnar sem þeir styðjast í niðurrifinu og uppbyggingu hins nýja samfélags hafa lengi verið að bruggast í tæknigeiranum - og þær eru róttækari en marga grunar. Lýðræðið er komið á endastöð, og Bandaríkin þurfa snjallan forstjóra sem stýrir samfélaginu eins og sprotafyrirtæki. Það þarf að byggja upp einveldi, nýtt konungsdæmi, segja jafnvel sumir. Í þessum þáttum sökkvum við okkur ofan í þessar byltingarhugmyndir og hugsuðina á bakvið þær, konungssinnana í Kisildal. Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Kristján Guðjónsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
RÚV Hlaðvörp
Sign up to track rankings and reviews from Spotify, Apple Podcasts and more.